|
þriðjudagur, 07 febrúar 2012 14:16 |
|
Föstudaginn 10 . febrúar 2012 er opinn dagur í Seljaskóla. Dagskráin stendur frá kl. 9.00-12.00. Tilgangur með opna deginum er að brjóta upp hefðbundinn skóladag. Þennan dag er foreldrum og öðrum gestum boðið í skólann til að fylgjast með nemendum í leik og starfi, en fyrst og fremst að eiga saman skemmtilegan dag. Margt verður um að vera í skólanum og íþróttahúsi. Dagskrá verður í hátíðarsal skólans, förðunarkeppni í myndlistarstofu, ljósmyndamaraþon í 8. – 10. bekk, vöfflustöðvar út um allt, myndlistarsmiðja, origami, skák, kaffihús, andlitsmálun svo fátt eitt sé talið upp af því sem verður á dagskrá. Vonumst við til að sem flestir foreldrar sjái sér fært að heimsækja skólann þennan dag.
Dagskrá opna dagsins verður send foreldrum í tölvupósti. |
|
Síðast uppfærsla: þriðjudagur, 07 febrúar 2012 14:19 |
|
|
fimmtudagur, 26 janúar 2012 15:26 |
|
26. janúar var hundraðasti skóladagur nemenda í 1. bekk en þeir hafa verið taldir samviskusamlega frá fyrsta degi. Í tilefni dagsins var slegið upp veislu.
Byrjað var á því að fara í vasaljósagöngu að tjörninni. Allir nemendur höfðu búið til og skreytt kramarhús og fengu í það 10 tegundur af ýmsu góðgæti og taldi hver nemandi í 10 stykki af hverju í kramarhúsið sitt þannig að samtals voru 100 stykki í hverju, t.d. cheerios, rúsínur, popp, saltstangir og fl.
Í hádeginu var gasgrillið dregið út í snjóskafl og grillaðar pylsur og boðið upp á 100 daga köku í eftirrétt. Stórskemmtilegur dagur sem tókst í alla staði sérstaklega vel.
|
|
Síðast uppfærsla: föstudagur, 03 febrúar 2012 11:58 |
|
fimmtudagur, 12 janúar 2012 14:10 |
|
Kynning verður á námi í framhaldsskólum fyrir nemendur í 9. og 10. bekk og foreldra þeirra fimmtudaginn 19. janúar í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti frá kl. 17:00 – 19:00
Á staðnum verða fulltrúar frá framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu ásamt fulltrúa frá menntmálaráðuneytinu. Nemendur og foreldrar í Breiðholti, Árbæ, Norðlingaholti og Grafarholti fá hér frábært tækifæri til að kynna sér á einum stað fjölbreytt framhaldsnám á höfuðborgarsvæðinu. |
|
Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 12 janúar 2012 14:20 |
|
|
þriðjudagur, 17 janúar 2012 09:23 |
|
Fimmtudaginn 19. janúar er foreldradagur í skólanum. Foreldrar/forráðamenn koma ásamt barni sínu í viðtal til umsjónarkennara. Námsmat fyrir haustönn fer fram þessa dagana og fá nemendur afhentar einkunnir fyrir haustönn, miðvikudaginn 18. janúar. Á foreldradaginn eru auk umsjónarkennara allir sérkennarar og sérgreinakennarar skólans til viðtals og eru foreldrar hvattir til að koma einnig til þeirra. |
|
Síðast uppfærsla: þriðjudagur, 17 janúar 2012 09:25 |
|
miðvikudagur, 04 janúar 2012 15:49 |
Nú er skólastarfið byrjað aftur og viljum við minna á endurskinsmerkin - þau eru mikilvægasta öryggistæki barnanna okkar í myrkrinu.

Einnig viljum við minna alla á að það er mikilvægt að koma vel klæddur í skólann, húfur og vettlingar eru þarfaþing það er kalt úti og allskyns pestir að ganga.
Munið bara að merkja fötin vel.
|
|
Síðast uppfærsla: fimmtudagur, 12 janúar 2012 14:04 |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 41 |